Afslappað líf...:)

Ég geri fátt annað þessa dagana en að hanga í tölvuni á milli þess sem ég hugsa um dúlluna mína, sem verður mánaðargömul á morgun!! :) Tíminn er ótrúlega fljótur að líða. Hún er voða vær og góð fyrir utan smá magakveisu á kvöldin, vona það sé ekki eithvað sem ég er að borða sem fer illa í mallann hennar, er að prófa í dag að sleppa að drekka kaffi og sjá hvort hún sleppi við magapínu í kvöld, en úff vá hvað mig langar í kaffi samt!! Er alveg að sjá að ég er kaffi fíkill!, einsog flest allir sem drekka kaffi. hef samt ekki verið að drekka meir en 2 bolla á dag, og ég er bara í fráhvörfum með hausverk og læti...ekki gott hehe, en það ætti nú að hverfa fljótt :)........

En vá hvað stelpan mín stækkar ört og breytist mikið á stuttum tíma, hún er farin að brosa og er ótrúlega athugul, ég sé mun á henni í hverri viku,og hún er að þyngjast vel :) æðislegt að fylgjast með henni.

Hér er hún sæta músin mín(:

 Máney Tara :)

maneyfeb08 017

og ein af okkur saman(:

maneyfeb08 058


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Æji frábært elsku Svandís..Aftur innilega til hamingju með litla engilinn..Það var svo gaman að vera svona óléttar saman í vinnunni..Fyndið samt að eg hafi átt á undan þér..Ég var alltaf búin að sjá það geðveikt fyrir mér að þú yrðir fyrst með fréttirnar og að ég myndi heyra af þinni fæðingu á undan minni..En það er nú ekki langt á milli þeirra*

Og já..Flott hjá þér að tékka á þessu með kaffið...Þetta er allt búið að vera að hafa mjög skemmtileg áhrif á mig þetta með að breyta matarræðinu..Maður er eitthvað svo miklu hollari þessa dagana en áður..Held ég..

Annars..Gangi ykkur sætu fjölskyldunni bara vel*

Soffía mamma*

Soffía litla:) (IP-tala skráð) 28.2.2008 kl. 17:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

dízaDröfn
dízaDröfn

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband